6. júní - 2024

Easee Charge Core er komin á markað

Easee Charge Core, mest prófaða og hugsanlega öruggasta hleðslustöð heims er komin í forsölu hjá Reykjafelli.
Easee Charge Core á stólpa við hlið bíls.

Engin hleðslustöð á markaðnum hefur undirgengist eins ýtarlegar prófanir og Easee Charge Core. Þessi nýja hleðslustöð frá norska framleiðandanum Easee verður væntanleg til afhendingar af lager Reykjafells á næstu tveim vikum.

Easee Charge Core er fullkomin fyrir fjölbýlishús og stærri hleðslukerfi og passar beint í Easee Ready dokkuna sem hefur verið í notkun undanfarin ár. Charge Core er samhæfð eldri Easee stöðvum.

Meira um Easee Charge Core hér

Impersonating as ()