Persónuverndarstefna Reykjafells
Persónuverndarstefna Reykjafells ehf.
Almennt
Í persónuverndarstefnu þessari er því lýst hvernig Reykjafell ehf. vinnur með persónuupplýsingar einstaklinga. Öll vinnsla Reykjafells ehf. á persónuupplýsingum fer fram á grundvelli laga nr. 90/2018 um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga („persónuverndarlög“).
Með persónuupplýsingum er átt við allar upplýsingar sem hægt er að rekja til tiltekins einstaklings. Hér má nefna upplýsingar á borð við nafn, kennitölu, heimilisfang, símanúmer, netfang, myndefni, netauðkenni, samskipti og fleira. Í 2. tl. 3. gr. persónuverndarlaga má finna nánari útlistun á því hvað fellur undir hugtakið „persónuupplýsingar“.
Með vinnslu á persónuupplýsingum er átt við aðgerð eða röð aðgerða þar sem unnið er með persónuupplýsingar. Sem dæmi um vinnslu á persónuupplýsingum má nefna söfnun þeirra, skráningu, varðveislu, breytingu, miðlun, notkun, skoðun og fleira. Í 4. tl. 3. gr. persónuverndarlaga er nánar útskýrt hvað fellur undir hugtakið „vinnsla“.
Ábyrgðaraðili
Ábyrgðaraðili að vinnslu persónuupplýsinga er sá aðili sem ákveður tilgang og aðferðir við vinnsluna, sbr. 6. tl. 3. gr. persónuverndarlaga. Reykjafell ehf. er í hlutverki ábyrgðaraðila þegar kemur að vinnslu persónuupplýsinga um einstaklinga sem persónuverndarstefna þessi tekur til.
Samskiptaupplýsingar Reykjafells ehf.:
- Reykjafell ehf., kt. 530269-6559
- Blikastaðavegi 2, 112 Reykjavík
- Símanúmer: 588-6000
- Netfang: reykjafell@reykjafell.is
Hvenær vinnur Reykjafell ehf. með persónuupplýsingar?
Þegar óskað er eftir reikningsviðskiptum
Viðskiptavinir Reykjafells ehf., sem alfarið eru fyrirtæki en ekki einstaklingar, geta óskað eftir að eiga í reikningsviðskiptum við fyrirtækið. Í þeim tilfellum vinnur Reykjafell ehf. með upplýsingar um tengilið beiðanda á borð við nafn, netfang og símanúmer í þeim tilgangi að gera viðskiptin möguleg. Heimild til vinnslunnar byggir á 6. tl. 9. gr. persónuverndarlaga.
Innskráning í netverslun
Viðskiptavinir Reykjafells ehf. fá aðgang að netverslun fyrirtækisins. Til þess að tryggja örugga innskráningu þurfa tengiliðir að auðkenna sig með viðeigandi hætti, svo sem með netfangi og lykilorði eða rafrænum skilríkjum. Heimild til vinnslunnar byggir á 6. tl. 9. gr. persónuverndarlaga.
Þegar verslað er í netverslun
Þegar tengiliður viðskiptavinar kaupir vöru í gegnum netverslun verða til upplýsingar um hvaða vara var keypt, hvenær, í nafni hvers og á hvaða verði. Tilgangur þess er að geta afgreitt pöntun viðskiptavinar með fullnægjandi hætti. Heimild til vinnslunnar byggir á 6. tl. 9. gr. persónuverndarlaga.
Kaupsaga í netverslun
Upplýsingar um kaupsögu fyrirtækis og tengiliðs verða til í netverslun Reykjafells ehf. Er tilgangur þess að veita viðskiptavini yfirsýn yfir viðskipti hans við fyrirtækið. Heimild til vinnslunnar byggir á 6. tl. 9. gr. persónuverndarlaga.
Reikningagerð
Við reikningagerð er nauðsynlegt fyrir Reykjafell ehf. að vinna með upplýsingar um tengilið viðskiptavinar, svo sem nafn og netfang í þeim tilgangi að geta sent og gert grein fyrir reikningum. Heimild til vinnslunnar byggir á 6. tl. 9. gr. persónuverndarlaga.
Samskipti við tengiliði
Við notum tölvupóst til að koma upplýsingum á framfæri og eiga í samskiptum við tengiliði viðskiptavina. Eru slík samskipti jafnframt nauðsynleg svo viðskiptasambandið geti gengið upp með eðlilegum og skilvirkum hætti. Heimild til vinnslunnar byggir á 6. tl. 9. gr. persónuverndarlaga.
Skráning á póstlista
Tengiliðir viðskiptavina geta óskað eftir að fá senda reglulega tölvupósta á netfangið sitt með upplýsingum sem tengjast starfsemi Reykjafells ehf., til dæmis varðandi tilboð eða sérstakar vörur. Heimild til vinnslunnar byggir á 1. tl. 9. gr. persónuverndarlaga.
Þegar þú hefur samband við okkur í gegnum samfélagsmiðla
Reykjafell er á samfélagsmiðlum í þeim tilgangi að auka sýnileika fyrirtækisins. Notendur samfélagsmiðla geta sent fyrirtækinu skilaboð þar hafi þeir einhverjar spurningar um starfsemina. Heimild til vinnslunnar byggir alla jafna á 1. tl. 9. gr. persónuverndarlaga.
Þegar við auglýsum á samfélagsmiðlum
Reykjafell ehf. kaupir og birtir auglýsingar á samfélagsmiðlum í þeim tilgangi að koma starfsemi fyrirtækisins á framfæri. Til að auglýsing skili sem bestum árangri er tiltekinn markhópur valinn þar sem notast er við breytur á borð við aldur, staðsetningu, hvort viðkomandi eigi fyrirtæki eða sé í stjórnunarstöðu innan þess. Vinnslan styðst í þessum tilfellum við samþykki sem notendur veita miðlunum, sbr. 1. tl. 9. gr. persónuverndarlaga.
Þegar komið er í húsnæði fyrirtækisins
Í húsnæði fyrirtækisins eru eftirlitsmyndavélar sem taka upp myndefni, þar sem gestir geta komið fyrir, í þeim tilgangi að tryggja öryggi manna og muna. Heimild til vinnslunnar byggir á 6. tl. 9. gr. persónuverndarlaga.
Þegar þú hefur samband við okkur með tölvupósti
Einstaklingar geta sent okkur fyrirspurn með tölvupósti. Vinnur Reykjafell ehf. þá með viðeigandi upplýsingar í þeim tilgangi að verða við henni. Heimild til vinnslunnar byggir á markmiðinu með fyrirspurn hverju sinni. Ef um er að ræða almenna fyrirspurn kann hún að byggja á 1. tl. 9. gr. persónuverndarlaga. Ef um er að ræða sértæka fyrirspurn frá tengilið viðskiptavinar kann hún aftur á móti að byggja á 6. tl. 9. gr. persónuverndarlaga.
Þegar þú selur okkur þjónustu
Reykjafell ehf. á í viðskiptum við ýmsa aðila, svo sem þá sem selja fyrirtækinu sérfræðiþjónustu, úthluta búnaði eða taka að sér ákveðin verk. Í slíkum tilfellum þarf fyrirtækið óhjákvæmilega að vinna með persónuupplýsingar, einkum í þeim tilgangi að uppfylla samnings- og lagaskyldur. Vinnslan styðst þá við heimild í 2., 3. og 6. tl. 9. gr. persónuverndarlaga.
Þegar þú notar heimasíðuna okkar
Vefkökur eru litlar textaskrár sem eru geymdar á tölvunni þinni eða í öðrum snjalltækjum þegar þú heimsækir vefsíðu. Reykjafell ehf. notar eftirfarandi vefkökur:
Nauðsynlegar vefkökur. Þessar kökur eru nauðsynlegar svo heimasíðan okkar virki með eðlilegum hætti, til dæmis svo unnt sé að auðkenna innskráða notendur eða vita hvort notendur hafi samþykkt eða hafnað tilteknum vefkökum. Heimild til þess byggir á 6. tl. 9. gr. persónuverndarlaga.
Tölfræðivefkökur. Reykjafell ehf. notar tölfræðivefkökur til að greina notkun á heimasíðu fyrirtækisins. Með því fást til dæmis upplýsingar um hversu margir notendur opna tilteknar undirsíður á heimasíðunni, hversu lengi þær eru skoðaðar, frá hvaða vefsíðum notendur koma inn á síðuna, hvaða efni var leitað af í leitarvélinni á síðunni og hvers konar vafra þeir nota til að skoða hana. Tilgangur þess er að fá fram tölfræðiupplýsingar sem eru notaðar til að betrumbæta og þróa vefsíðuna og þær upplýsingar sem þar eru birtar. Heimild til þess byggir á samþykki notenda, sbr. 1. tl. 9. gr. persónuverndarlaga.
Markaðsvefkökur. Þessar vefkökur er notaðar til að rekja slóð notenda á milli heimasíða í þeim tilgangi að birta þeim viðeigandi auglýsingar. Reykjafell ehf. notast við markaðsvefkökur og byggir heimild til þess á samþykki notenda, sbr. 1. tl. 9. gr. persónuverndarlaga.
Aðgangur þriðja aðila
Reykjafell ehf. notar upplýsingatæknikerfi sem auðvelda skráningu, utanumhald og miðlun á upplýsingum. Þjónustuaðilar kunna að hafa aðgang að upplýsingum í tengslum við þjónustu þeirra við kerfin. Þá kunna verktakar, sem taka að sér ákveðin verk, einnig að hafa aðgang að upplýsingum. Í þessum tilvikum er trúnaðarsamkomulag gert við viðkomandi sem kveður á um skyldu hans til að gæta fyllsta trúnaðar, tryggja öryggi og fara eingöngu með persónuupplýsingar í samræmi við fyrirmæli Reykjafells ehf.
Myndefni er deilt með lögreglu ef einstaklingur verður uppvís að refsiverðri háttsemi í húsnæði fyrirtækisins. Að öðru leyti hefur þriðji aðili ekki aðgang að persónuupplýsingum nema Reykjafelli ehf. sé skylt að veita aðgang á grundvelli viðeigandi laga.
Öryggi persónuupplýsinga
Reykjafell ehf. hefur gert öryggisráðstafanir og einsett sér að tryggja trúnað, áreiðanleika og tiltækileika persónuupplýsinga í hvívetna. Aðgangsstýringar eru að kerfum og húsnæði fyrirtækisins. Öryggisráðstöfunum fyrirtækisins er ætlað að vernda persónuupplýsingar gegn því að þær breytist, glatist, verði birtar eða aðgangur verði veittur að þeim í leyfisleysi.
Varðveislutími persónuupplýsinga
Reykjafell ehf. geymir persónuupplýsingar í þann tíma sem nauðsynlegt er fyrir fyrirtækið að hafa þær undir höndum. Bókhaldsgögn eru geymd í sjö ár í samræmi við lög nr. 145/1994 um bókhald. Myndefni úr eftirlitsmyndavélum er geymt í 14 daga. Þegar ekki er þörf fyrir Reykjafell ehf. að hafa persónuupplýsingar undir höndum lengur eyðir fyrirtækið þeim með öruggum hætti.
Réttindi þín
Þú nýtur ákveðinna réttinda samkvæmt persónuverndarlögum. Ef þú vilt neyta þessara réttinda þinna hefur þú samband við okkur í gegnum netfangið reykjafell@reykjafell.is. Við höfum einn mánuð til að svara erindi þínu en getum framlengt frestinn um tvo mánuði ef beiðnin er sérstaklega umfangsmikil. Rétt er að taka fram að réttindi þín eru ekki fortakslaus og kunna að vera háð ákveðnum skilyrðum. Hér er að finna yfirlit yfir helstu réttindi þín:
Réttur til aðgangs. Þú átt rétt á að óska eftir aðgangi að þínum gögnum og fá afrit af þínum persónuupplýsingum.
Réttur til leiðréttingar. Þú átt rétt á að fá upplýsingar um þig sem eru rangar og ónákvæmar leiðréttar.
Réttur til eyðingar. Í ákveðnum tilfellum getur þú átt rétt á að þínum persónuupplýsingum sé eytt. Þetta á einkum við í þeim tilfellum þar sem upplýsingar eru ekki lengur nauðsynlegar, þú hefur andmælt vinnslunni, vinnslan reynist ólögmæt, eða ef vinnslan byggir á samþykki sem þú hefur afturkallað.
Réttur til að andmæla vinnslu. Byggi vinnsla okkar á persónuupplýsingum á lögmætum hagsmunum, og þú telur að hún brjóti gegn grundvallarréttindum þínum, þá getur þú andmælt vinnslunni. Við hættum þá vinnslunni nema við sýnum fram á ríkari hagsmuni af því að halda henni áfram.
Réttur til takmörkunar á vinnslu. Í eftirfarandi tilfellum átt þú rétt á að við stöðvum vinnslu persónuupplýsinga:
- Ef þú véfengir að persónuupplýsingar séu réttar (þar til við getum staðfest að þær séu réttar).
- Vinnslan er ólögmæt, en þú vilt ekki að persónuupplýsingunum sé eytt.
- Við þurfum ekki lengur á upplýsingunum að halda en þú þarfnast þeirra til að hafa uppi, stofna eða verja réttarkröfu.
- Þú hefur andmælt vinnslunni og við höfum ekki bent á ríkari hagsmuni af því að halda henni áfram.
Réttur til að afturkalla samþykki. Í þeim tilfellum þar sem við byggjum vinnslu á samþykki þínu er þér ávallt heimilt að afturkalla slíkt samþykki. Afturköllun á samþykki þýðir þó ekki að vinnslan sem fór fram áður en samþykki var afturkallað sé ólögmæt.
Réttur til að leggja fram kvörtun hjá Persónuvernd. Teljir þú að ekki sé farið með persónuupplýsingar þínar í samræmi við persónuverndarlög átt þú ávallt rétt á að leggja fram kvörtun hjá Persónuvernd (www.personuvernd.is).
Frekari upplýsingar
Hafir þú frekari spurningar um hvernig Reykjafell meðhöndlar þínar persónuupplýsingar getur þú sent okkur fyrirspurn í gegnum netfangið reykjafell@reykjafell.is.
Endurskoðun
Persónuverndarstefna þessi getur frá einum tíma til annars tekið breytingum í samræmi við breytingar sem verða á viðeigandi lögum eða ef breytingar verða því hvernig Reykjafell ehf. meðhöndlar persónuupplýsingar.



