


Nýtt
COMELIT INNITÆKI m/TÓLI OG 4.3" SKJÁ : PL6701


Sölueining: 1 stk.1 stk.
Vörulýsing
Mynddyrasími með tóli og 4,3"/16:9 skjá. Hægt er að forrita mynddyrasímann, jafnvel þó slökkt sé á skjánum, með snjallsíma í gegnum MyComelit appið, sem hægt er að hlaða niður án endurgjalds.
Tækið kemur með málmbakplötu til utanáliggjandi uppsetningar sem tryggir örugga og stöðuga festingu, auk línudeili. Á framhliðinni eru fjórir hnappar með táknum sem sýna fyrirfram skilgreindar aðgerðir. Hnappur fyrir opnun (raflás) er baklýstur með hvítu ljósi. Þrír hnappar eru forritanlegir og eru forstilltir til að hringja í móttöku/vakt, stýra rofa (actuator) og til að virkja skjá.
Hnapparnir í miðju hvorrar línu eru með upphleyptri merkingu til að auðvelda notkun fyrir sjónskerta. Á hægri hlið dyrasímans eru hnappar til að virkja hljóðlausan ham (mute) með rauðu stöðuljósi og tákni, ásamt hnöppum til að opna valmynd fyrir stillingar á skjá og hljóðstyrk hringingar.
Stærð (B x H x D): 186x180x35 mm



