Vörulýsing

Brunainnlegg í dósir úr grafítefni og sjálflímandi á bakhlið. Innleggið þenst út tífallt við 200 °C og lokar þannig dósinni. Innleggið er ekki nema 6 mm þykkt og
 50x50 mm (bxl) og kemst því auðveldlega á botninn í flestar dósir hvort sem um vegg- eða loftadósir er að ræða. 

Vottað og prófað fyrir flokka EI 60 - EI 180 samkvæmt NS-EN 1366-3 (2009) og EN 13501-1/2 og ETA-15/0339. Mikilvægt er að fylgja leiðbeiningum til að uppfylla staðla eftir aðstæðum – sjá viðhengi.

Notkunarsvæði eru margvísleg í bæði loft/gólf og veggi, ítarlegar upplýsingar í tækniblöðum í viðhengi.


Impersonating as ()