Eiginleikar

Tegund
Brunaþéttirör
Gerð
102 011
Utanmál
65x65 mm
Innanmál
53x53 mm
Lengd
400 mm
Litur
Rauður

Vörulýsing

Ferkantaður brunaþéttihólkur úr galvanhúðuðu 1 mm stáli með svörtu ferhyrndu gúmmíloki í báðum endum fyrir kald-reykþéttingu. Hólkurinn er púðurhúðaður í rauðum lit með brunaþéttikraga, í miðjum hólk að innanverðu, sem þenst hratt út við 150 °C. 

Vottað og prófað fyrir flokka EI 45 – EI 120. Hentar vel þar sem fyrirliggjandi lagnir eru sem þurfa eftir á brunaþéttingu þar sem hægt er að opna eina hlið að endilöngu. Gúmmítapparnir eru 20 mm þykkir og eru settir utan um kapla eftir uppsetningu til að tryggja kald-reykþéttingu.

Notkunarsvæði samkvæmt EN 1363-1 í bæði loft/gólf og veggi, nánari upplýsingar í tækniblöðum í viðhengi.

Impersonating as ()