INTERCABLE FBS II 8° - Hálfleiðarahefill : 17252

Sölueining: 1 stk.1 stk.

Vörulýsing

Hefill til að hefla hálfleiðaralagið af PEX-inu á millispennu- og háspennustrengjum, að hámarki 1,5 mm á þykkt. Þvermál á PEX-i með hálfleiðaralagi má vera frá 16-58 mm. Skurðarblað er stillanlegt í dýpt frá 0-1,5 mm. Blaðið er með 8° halla sem gefur okkur vel aflíðandi skil á milli PEX og hálfleiðaralags.

Setja skal hefilinn á strenginn og í kjölfarið setja hann í keyrsluham. Stilla skal hefilinn þannig að lagið sem heflað er af sé 1/3 glært og 2/3 svart. Tryggja skal að heflun sé gerð með sem jöfnustum hraða. Þegar búið er að hefla lagið af, skal taka hefilinn úr gír og snúa tvo til þrjá hringi. Í kjölfarið skal opna hefilinn vel og hann dreginn varlega af.


Impersonating as ()