




EATON IZMX AFLROFAR (ACB)




Sölueining: 1 stk.1 stk.
Vörulýsing
Eaton IZMX aflrofar (ACB) eru öflugir og áreiðanlegir aflrofar sem henta í flest allar aðstæður. Rofarnir eru fyrir 440/690 VAC spennu og allt að 4000 A straumflutning og eru fáanlegir útdraganlegir eða sem fastir rofar í töflu.
Val er um allt að fjórar gerðir af yfirálagsvörnum í rofana fyrir mismunandi notkun, sjá nánar í tækniupplýsingum.
Aflrofarnir eru afhentir með yfirálagsvörn og þeim aukabúnaði sem kaupandi hefur valið og pantað með.
Það eru tvær rofalínur í IZMX aflrofunum:
IZMX16 rofalínan nær frá 630-1600 A (42 til 66 kA)
IZMX40 rofalínan nær frá 800-4000 A (50 til 105 kA)
Nánari upplýsingar fást hjá sölumönnum Reykjafells og á vefsíðu EATON.





