Vörulýsing

Eurotest XC mælirinn frá Metrel er góður og sterkur úttektarmælir fyrir TN, TT og IT kerfi. Er með stóran og þægilegan litaskjá og bluetooth samskipti. Uppfyllir staðla EN 61557 og EN 61010-1. Hægt að vista inn mælingar og hlaða niður á tölvu til skýrslugerðar. Mælinum fylgir góður leiðarvísir á ensku og allar helstu prófunarsnúrur.
Til notkunar innandyra, IP40.

Mælingar:

• Leiðnimæling: 7 mA = 20/200 Ω . 20 mA =  20/200/2000 Ω
• Einangrunarmæling : 50/100/250/500/1000 V
• Hringrásarviðnám: 0-20000 Ω
• Lekaliðaprófun RCD: 10/30/100/300/500/1000 mA
• Gerðir lekaliða: AC, A, F, B, B+
• Skammhlaupsstraumar (PSC/PFC): 23 kA/200 kA útreiknað
• Fasaraðsjá
• Spennumæling: 0-550 V AC
• Tíðnimæling: 10-500 Hz
• Prófun f. eldingavarnarbúnað (SPD (Varistor) test)
• Raftækjaprófun (PAT test)
• Prófanir á EVSE Hleðslustöðum fyrir rafbíla með viðeigandi aukabúnaði

Impersonating as ()