


Eiginleikar
Tegund | Lekaliði |
Gerð | AC |
Fjöldi póla | 4 |
Málspenna | 230/400 V AC |
Málstraumur | 63 A |
Lekastraumur | 500 mA |
Skammhlaupsþol | 10 kA |
Hersla | 2-2,4 Nm |
Varnarflokkur | IP20 |
Umhverfishitastig | -25 °C - +40 °C |
Stærð (HxBxD) | 80x70x69,5 mm |
EATON JARÐLEKAR0FI TYPE AC 4p: PFGM-63/4/05 **


Sölueining: 1 stk.1 stk.
Vörulýsing
Lekaliði fyrir almenna notkun.
N-póll vinstra megin.
Þann 13. október 2020 tók í gildi breyting á 7. mgr. reglugerðarinnar sem bannar notkun á jarðlekarofum og jarðlekavarrofum af AC-gerð í ákveðnum tilfellum og skulu þeir ekki notast við almennar ljósa- og tenglagreinar. Ástæðan er sú að AC-liðarnir sem eiga að slá út við 30 mA lekastraum voru ekki að slá út fyrr en í og við 120 mA í sumum tilfellum sökum þess álags sem við þá var tengt. Álagið sem orsakaði þetta var t.d. rafeindabúnaður á við LED lýsingabúnað, rafeindadimmar, tíðnibreytar og önnur elektrónísk raftæki sem sköpuðu óhreint net og AC-liðarnir skynjuðu það ekki vel. Því skal frá og með 13. október, með smá aðlögunartíma sem er liðinn, notast við jarðlekabúnað af A-gerð sem henta betur.
Nú það þýðir samt ekki að AC-liðarnir séu með öllu bannaðir, þeir eru t.d. hentugir í álag sem er mikið til hreint viðnámsálag sbr. vinnutöflur, rafhitaofna, hitatúbur, bakarofna, hitaelement, vinnutengla o.fl. í raun þar sem almenningur hefur ekki aðgang að tenglum eða búnaður við hann hefur ekki bjagandi áhrif á sínusbylgjuna.









