21. desember - 2023

Weidmüller komið í hóp birgja Reykjafells

Það er með stolti og gleði að Reykjafell kynnir Weidmüller til sögunnar sem einn af framtíðarbirgjum félagsins.
Þrír menn í sýningarrými með appelsínugulri lýsingu.

Í síðustu viku var formlega handsalaður samningur milli Weidmüller og Reykjafells um sölu og markaðssetningu á vörum þeirra á Íslandi þegar Jørn Egholm Jensen frá Weidmuller í Danmörku kom til okkar í Skipholtið. 

Weidmüller er eitt af stóru merkjunum í bransanum með gríðarlegt úrval af lausnum í raðtengjum, I/O einingum, stýrivélum, verkfærum og merkingum. Í samstarfi við viðskiptavini sína hefur fyrirtækið verið leiðandi í vöruþróun sem hefur hjálpað hinum ýmsu geirum iðnaðarins að gera vinnu sína einfaldari og straumlínulagaðri. Nýjasta dæmi þess eru Snap-in raðtengi Weidmüller sem hafa vakið mikla athygli.

Við í Reykjafelli erum mjög spennt að fá Weidmüller í hús og starfa með þeim og koma lausnum þeirra á framfæri til viðskiptavina okkar. Formleg opnun Weidmüller í Reykjafelli verður með „Orange-week“ í Reykjafelli 19.-23. febrúar og verður kynnt betur í byrjun 2024.

Úrval af aflgjöfum frá Weidmüller í ólíkum stærðum.
Impersonating as ()