18. maí - 2026

Reykjafell og Eaton færa Tækniskólanum gjöf í tilefni 70 ára afmælis

Með verkefninu vilja Reykjafell og Eaton leggja sitt af mörkum til framtíðar fagmenntunar og efla aðstöðu nemenda um land allt.
Fulltrúar við afhendingu gjafar Reykjafells og Eaton til Tækniskólans.

Guðrún Ýrr, skólastjóri Tækniskólans, tók nýverið á móti gjöf frá Reykjafelli og Eaton í tilefni af 70 ára afmæli Reykjafells. Þeir Guðmundur Pétur Yngvason og Geir Arnar Geirsson afhentu gjöfina fyrir hönd Reykjafells og Eaton.

Í tilefni tímamótanna hefur Reykjafell ákveðið að færa öllum verkmenntaskólum landsins búnað að gjöf til notkunar við kennslu. Markmið verkefnisins er að styðja við verk- og tæknimenntun á Íslandi og skapa nemendum betri aðstöðu til náms og verklegrar þjálfunar með vönduðum búnaði.

Impersonating as ()