14. maí - 2025

Reykjafell í samstarf við Seyond: Snjallari samgöngulausnir

Við hjá Reykjafelli erum stolt af því að kynna samstarf við Seyond, leiðandi alþjóðlegt fyrirtæki á sviði LiDAR-tæknilausna fyrir samgöngur.
Seyond-skynjari við skjámynd af umferðargreiningu.

Í samvinnu við Seyond mun Reykjafell kynna og selja SIMPL-kerfið hér á landi, lausn sem gerir íslenskum veghöldurum auðveldara að snjallvæða gagnasöfnun og sparað dýra slaufuskynjara í götu og viðhald á þeim. Búnaðurinn opnar dyr inn í framtíðina fyrir bæði umferðargreiningar og umferðarstýringar.

SIMPL lausnin frá Seyond nýtir langdræga, hágæða LiDAR-skynjara og öfluga stafræna vinnslu til að greina og flokka alla vegfarendur, gangandi, hjólandi og akandi – í hvaða veðri sem er. Búnaðurinn er mjög öflugur og samhæfur fjölda samskiptastaðla, sem gerir alla vinnslu og uppsetningu auðveldari. 

„Seyond passar mjög inn í það sem við sjáum fyrir okkur í snjallvæðingu samgangna á Íslandi. Seyond opnar fjölda möguleika fyrir veghaldara til að spara og bæta samgöngur á sama tíma“ segir Ómar Gíslason, ábyrgðarmaður sölu- og viðskiptaþróunar hjá Reykjafell.

Litakóðuð umferðargögn í stjórnviðmóti Seyond.

Philip Lassner, framkvæmdastjóri alþjóðlegra ITS-viðskipta hjá Seyond, bætir við: „Við erum spennt að sameina krafta okkar með Reykjafelli við innleiðingu SIMPL á Íslandi. Reykjafell er með góð tengsl við viðskiptavini sína og skilning á þörfum þeirra. Reykjafell er því kjörinn samstarfsaðili til að kynna og afgreiða SIMPL á Íslandi“.

Með því að bjóða upp á LiDAR skynjaralausn í samvinnu við Seyond, bætir Reykjafell upp á þá ITS möguleika sem eru í boði til að taka enn eitt skrefið í átt að snjallari og öruggari samgöngum hér á landi, vegfarendum og samfélaginu til góða.

Þrívíddarmynd af hindrunum sem skynjari greinir á akbraut.
Impersonating as ()