10. október - 2025

Reykjafell gerir stóran samning við RARIK

Reykjafell hefur undirritað samning við RARIK um afhendingu á jarðstrengjum fyrir 36 kV dreifikerfi. Samningurinn markar tímamót í þróun og vexti Reykjafells á íslenskum markaði afldreifingar.
Rafmagnssnúra myndar Íslandskort við merki RARIK og Reykjafells.

Samningurinn, sem var formlega undirritaður 8. október 2025, felur í sér afhendingu á 36 kV jarðstrengjum næstu ár og tryggir RARIK áreiðanlega og skilvirka þjónustu við uppbyggingu raforkukerfisins um allt land. Með þessum árangri styrkir Reykjafell stöðu sína sem einn helsti samstarfsaðili íslenskra orkufyrirtækja þegar kemur að afhendingarlausnum og tækni fyrir dreifikerfi raforku.

„Þetta er stór áfangi fyrir Reykjafell og staðfesting á þeirri stefnu sem við höfum fylgt – að byggja upp sérþekkingu, traust og lausnir sem styðja við öfluga afldreifingu á Íslandi,“ segir Kristinn Benediktsson, ábyrgðarmaður viðskiptaþróunar hjá Reykjafelli.

Fjórir fulltrúar við undirritun samnings RARIK og Reykjafells.

„Samningurinn við RARIK er bæði mikil viðurkenning og hvatning til að halda áfram að þróa þjónustu okkar og efla íslenskan markað með nýrri tækni, áreiðanleika og fagmennsku að leiðarljósi.“

Reykjafell hefur á undanförnum árum byggt upp sterka stöðu á sviði orku- og dreifikerfa með áherslu á gæði, þjónustu og nýsköpun. Með þessum samningi tekur fyrirtækið enn eitt mikilvægt skref í átt að því að verða leiðandi afl í þróun og uppbyggingu íslensks raforkumarkaðar.

Impersonating as ()