14. mars - 2024
Light+Building 2024 að baki
Þann 3. mars var Reykjafell með sinn hefðbundna Reykjafellsdag á L+B 2024 með heimsókn á nokkra af okkar helstu birgjum ásamt kvöldverði

Það var gríðarlega góð mæting á kynningar birgja okkar Spelsberg, Weidmüller, SIMES og Zumtobel. Um kvöldið þáðu 95 manns mat og drykk í boði Reykjafells og JUNG. Það var mjög góð stemmning og góður rómur gerður að sal og veitingum. Miðvikudaginn 6. mars bauð JUNG upp á kynningu á bás sínum og var góð mæting.
Reykjafell vill þakka öllum sem voru með okkur á L+B 2024, vonum að sýningin hafi verið eftirminnileg.
Ef það eru einhverjar spurningar varðandi vörur eða birgja okkar, er bara að hafa samband við sölumenn okkar.






