14. október - 2022
Light+Building 2022 í Frankfurt
Sunnudaginn 3. október var Reykjafellsdagurinn haldinn hátíðlegur á sýningarsvæði Light+Building 2022 í Frankfurt.

Mæting á sýninguna var með besta móti og kom stór hópur rafverktaka og fagaðila frá fjölbrautarskólunum, Rafmennt, Landspítalanum og Isavia. SART var einnig með stóran hóp sinna félagsmanna.
Farið var á sýningarsvæði fjögurra af okkar helstu birgjum og góður rómur gerður af þeim nýjungum og lausnum sem kynntar voru hjá JUNG, Spelsberg, AEC og Trevos.
Um kvöldið buðu Reykjafell og JUNG til kvöldverðar þar sem yfir 60 manns áttu með okkur góða kvöldstund.
Reykjafell þakkar öllum kærlega fyrir komuna !






