1. mars - 2022

Grenton Smart Home námskeið 7. mars

Mánudaginn 7. mars höldum við Grenton Smart Home námskeið til vottunar. Færri en vildu komust að á síðustu námskeið, því ráð að skrá sig sem fyrst.
Hvít, svört og rauð Grenton-veggstjórnborð.

Kafað verður ofan í uppsetningu á Grenton snjallbúnaði og þeir sem ljúka námskeiði fá sérstaka vottun frá Grenton. Námskeiðið stendur frá 8:30-15:30, mánudaginn 7. mars.

  • Hybrid kerfi – Þráðlaust Z-wave/WIFI eða um kapal.
  • Hægt að setja upp snjallkerfi með eða án heila (Distributed System Logic).
  • Hægt að samþætta við önnur kerfi eða búnað. Nánast ótakmarkaðir möguleikar.
  • Hágæða vörur á samkeppnishæfum verðum.
  • Notendavænn hugbúnaður til að setja upp snjallkerfið fylgir án aukagjalds.
  • Grenton framleiðir fallega rofa sem má nota til að stýra hverju sem er á snjallkerfinu.
  • Með Grenton smáforritinu má svo stjórna heimilinu hvar sem þú ert (Android, iOS).

Takmarkaður fjöldi kemst á námskeiðið og hvetjum við áhugasama til þess að skrá sig sem fyrst með tölvupósti á adam@reykjafell.is

Stýrieiningar fyrir Grenton-hússtjórnarkerfi.

Impersonating as ()