17. september - 2023
Fyrirmyndarfyrirtæki í rekstri 2023
Við erum stolt að greina frá því að Reykjafell hlaut viðurkenninguna „Fyrirmyndarfyrirtæki í rekstri“ árið 2023, nú fjórða árið í röð.

Reykjafell er á meðal 2,4% íslenskra fyrirtækja sem uppfylla ströng skilyrði Keldunnar og Viðskiptablaðsins til að fá þessa eftirsóttu viðurkenningu. Við erum auðvitað í skýjunum með þetta og afar stolt af okkar fólki.





