6. september - 2024
Framúrskarandi fyrirtæki 2024
Reykjafell fékk nýverið viðurkenningu Creditinfo, Framúrskarandi fyrirtæki 2024.

Við erum í skýjunum með viðurkenninguna og þökkum öllu okkar frábæra starfsfólki fyrir að gera þetta mögulegt. Þetta er áttunda árið í röð sem Reykjafell hlýtur þessa eftirsóknarverðu viðurkenningu, en Creditinfo hefur í yfir áratug unnið greiningu á rekstri íslenskra fyrirtækja og veitt Framúrskarandi fyrirtækjum viðurkenningu fyrir árangurinn. Markviss undirbúningur og þrotlaus vinna liggur að baki framúrskarandi árangri.





