Eaton AFDD+
Einföld viðbót sem getur bjargað mannslífum

Eaton AFDD+ er jarðlekasjálfvar með ljósbogavörn sem getur komið í veg fyrir eldsvoða vegna skemmdra eða illa tengdra rafmagnsvíra, skammhlaups eða rafmagnsbilana af öðrum toga.

Rafvirki með gögn í hendi á heimili.
Eaton AFDD+

Einföld viðbót sem getur bjargað mannslífum

Eaton AFDD+ er jarðlekasjálfvar með ljósbogavörn sem getur komið í veg fyrir eldsvoða vegna skemmdra eða illa tengdra rafmagnsvíra, skammhlaups eða rafmagnsbilana af öðrum toga.

Rafvirki með gögn í hendi á heimili.
Hvít Eaton-rafvörn með prófunarhnappi og rofasveif.

Fyrsta flokks jarðlekasjálfvar með ljósbogavörn

Eaton AFDD+ er jarðlekasjálfvar sem er sérstaklega hugsað fyrir byggingar þar sem margt fólk kemur saman eins og hótel, skóla, sjúkrahús, verslunarkjarna og svo mætti lengi telja. AFDD+ er einfalt að bæta við í hönnun töfluskápsins, en sé því komið fyrir í eldri töflum þarf að gera vissar breytingar til að tryggja að það veiti tilætlaða vörn.

Skýringarmynd af ljósboga milli leiðara og mögulegum orsökum hans.

Komdu í veg fyrir bruna vegna algengra bilana

Tæplega þriðjungur allra eldsvoða er af völdum rafmagnsbilana og kostnaðurinn á heimsvísu er yfir 1.300 milljarða króna. Eaton AFDD+ er því ótrúlega lítil viðbót við töfluskápinn sem getur unnið svo stórt verk.

Horfðu á myndbandið til að vita meira um þá vörn sem AFDD+ veitir.

Fjölskylda í stofu ásamt mynd af Eaton-rafvörn.

Byltingarkennd nýjung sem eykur öryggi

Hingað til hefur ekki verið hægt að nema ljósboga í rafkerfum með analog tækni, en ljósbogar eru ansi algengir og oft valdur að eldsvoða. Eaton AFDD+ breytir þessu og nú er hægt að nema þessar bilanir og bregðast við áður en illa fer. Þú getur smellt á hlekkinn hér að neðan til að sérpanta Eaton AFDD+

EATON AFDD

Impersonating as ()