EASEE

Hleðsla rafbílsins á að vera Easee

Easee eru margverðlaunaðar hleðslustöðvar í hæsta gæðaflokki sem eru bæði öruggar og einfaldar í notkun

EASEE

Hleðsla rafbílsins á að vera Easee

Easee eru margverðlaunaðar hleðslustöðvar í hæsta gæðaflokki sem eru bæði öruggar og einfaldar í notkun

Easee Charge hleðslustöð

Easee er ein besta hleðslustöðin á markaðnum, hvort sem það er fyrir heimahleðslu, fjölbýlishús eða stærri bílastæðahús. Easee er nú seld í 23 löndum og fer fjölgandi. Easee spilar stóran hlut í orkuskiptunum með góðri og öruggri vöru sem viðskiptavinurinn getur treyst. 

  • 22kW/klst
  • Type2 tengipunktur
  • Álagsdreifing
  • Fasaskiptir
  • 5 litir (svart er standard)
  • Easee aukabúnaður

  • Heimahleðsla

    Heimahleðsla

  • Fjölbýlishús

    Fjölbýlishús

  • Verslun og þjónusta

    Verslun og þjónusta

Uppsetning á Easee hleðslustöð

Easee hleðslustöðin er einstaklega auðveld í uppsetningu og tekur aðeins örfá augnablik að gera hana klára til notkunar. Easee hefur gert myndbönd til að útskýra öll skref nákvæmlega, bæði hvernig á að tengja og setja upp í Easee appinu. Nánari upplýsingar er hægt að finna á heimasíðu Easee.

Álagsdreifing, öryggi og hraðari hleðsla. 

Í komandi orkuskiptum og með fjölgun rafmagnsbíla, verður að sjá til þess að álagsdreifing milli almennrar notkunar og hleðsla rafbíla komi í veg fyrir útslátt á stofni fjölbýlishúsa. Álagsdreifing er þess vegna lykilatriði þegar það kemur að hleðslu í fjölbýlishúsum. Með AMP álagsstýringunni frá Easee er hægt að nýta getu stofnsins til fullnustu, og stilla álagið, svo ávalt sé hægt að hámarka hleðslu rafbíla.

Sterkbyggðir stólpar fyrir Easee hleðslustöðvar

Hleðslustaurarnir frá Easee eru bæði fágaðir og sterkbyggðir og eru til fyrir eina, tvær og jafnvel fjórar stöðvar. í stólpanum eru mjög aðgengileg tengibretti sem auðvelda vinnu rafvirkjans.

Easee U-Hook kapalhöldur

Stílhreinar Easee U-Hook kapalhöldur í ýmsum litum. Úr ryðfríu stáli.

Ítarlegt eftirlit og hágæða framleiðsla

Easee leggur mikla áherslu á að vörur þeirra uppfylli allar kröfur sem gerðar eru til hleðslubúnaðar, og gott betur. Með ítarlegu eftirliti og hágæða framleiðslu eru allar stöðvar prófaðar og merktar með eigin kennitölu. Með því er hægt að fylgjast með hverri einingu í framleiðsluferlinu og þegar hún er komin í notkun. Horfðu á myndbandið til að fræðast betur um málið.

e1 hleðslulausnin – Fullkomin sjálfvirk aðgangsstýring og greiðslumiðlun 

e1 er aðgangsstýring og greiðslumiðlun sem hentar einstaklingum, fyrirtækjum og húsfélögum. e1 vinnur að sameiningu allra hleðsluneta á Íslandi og munu því notendur e1 appsins fá aðgang að öllum opnum hleðslustöðvum á landinu. Eitt app, einn hleðslulykill. Allt á einum stað.

  • Notendur geta hlaðið niður e1 appinu í App Store eða Play store.
  • Í e1 appinu er hægt að finna hleðslustöðvar frá flestum þjónustuaðilum hér á landi og greiða í gegnum e1 appið.
  • e1 sendir mánaðarlega uppgjör, notkunarskýrslu, leggur inn á reikning og eigandi hleðslustöðvar greiðir raforkureikning sinn eins og venjulega
  • Allir notendur í þjónustu e1 fá sjálfvirkt uppgjör á hleðsluþjónustu
  • Húsfélagið/fyrirtækið geta ákveðið hverjir hafa aðgang og verð fyrir mismunandi hópa.

Skannaðu QR kóðann til að hlaða niður e1 appinu

Orkuskipting – Greiðslulausn og þjónusta

Orkuskipting sér um að rukka íbúa og greiða inn á húsfelagið. Einnig hægt að gera það í samstarfi með húsfélagsþjónustum sé húsfélagið með svoleiðis þjónustu.

  • Mánaðarlegar PDF skýrslur um raforkunotkun hvers og eins.
  • Mánaðarlegar PDF skýrslur til formanns/gjaldkera með yfirliti.
  • Sjálfvirk gjaldtaka fyrir hvern og einn notanda hleðslukerfis.
  • Myndræn framsetning sem kemur í veg fyrir týnd kílóvött.
  • Hugbúnaðarlausnir fyrir húsfélög, stofnanir og fyrirtæki.

Endursala og uppsetning Easee hleðslukerfa

Sala til einstaklinga er ekki í boði hjá Reykjafelli, aðeins fyrirtæki og fagaðilar geta verslað hjá okkur. Samstarfsaðilar okkar geta hinsvegar gert húsfélögum og einstaklingum tilboð í Easee hleðslustöðvar og uppsetningu á þeim.

SKOÐAÐU ÚRVALIÐ

Easee hleðslustöðvar og aukahlutir

Impersonating as ()