Gæði og hagkvæmni í lýsingu
Ansell er með hagkvæmar lýsingalausnir sem eru áreiðanlegar og stílhreinar. Vörurnar þeirra sameina góða endingu, nýjustu tækni og hönnun sem hentar fyrir fjölbreyttar aðstæður.

Tornado EVO er hannaður með einfaldleika í huga. Hann kemur tilbúinn til uppsetningar með læsanlegum stálklemmum sem tryggir hraða og áreiðanlega uppsetningu. Tornado EVO er með IP66 vörn sem verndar rafbúnaðinn fyrir veðri og vindum.

Primo Libero er nettur og stílhreinn lampi sem passar fyrir þriggja fasa brautir. Lampinn er með stillanlega ljósgjafa sem halla má þrjátíu gráður til að stilla af lýsinguna. Primo Libero hentar verslunarrýmum einstaklega vel og tryggir nákvæma og jafna lýsingu.

Dimmanlegur LED-kastari fyrir 24V Primo Mini brautarkerfi. Hentar vel fyrir heimili, hótel, veitingastaði og verslanir. Létt álbygging með 360° snúningi og allt að 180° halla gefur mikinn sveigjanleika við lýsingu. Hannað til að gefa markvissa og þægilega lýsingu með lítilli glýju.

Nettur og nútímalegur lampi á vegg eða loft með góðri birtu og einstakri orkunýtni. Hægt er að velja á milli þriggja litatóna ljóss og þriggja aflstillinga. Fæst með hvítum, króm-, satínkróm- eða grafítgráum ramma. Hönnunin einfaldar uppsetningu og ljósið er einnig fáanlegt með neyðarlýsingu eða hreyfiskynjara.

Comfort EVO veitir fullkomna stjórn á ljósmagni og litarhitastigi. Linsa lampans er hönnuð til að draga verulega úr glýju og vandaður búnaður með IP44 vörn tryggir frábæra endingu.

P-Cell er vandaður LED-borði sem er fáanlegur bæði IP20 og IP65. Ljóslitir í boði eru: 2700K, 3000K, 4000K og RGBW. Hentar í flest öll tilfelli þar sem þarf LED borða.