 Moeller hefur í áratugi verið eitt þekktasta vörumerkið í okkar fagi. Moeller rafbúnað er að finna í nær öllum fyrirtækjum, verksmiðjum, iðnaðarhúsnæði, skipum og heimilum landsins. Nafnið Moeller er öllum fagmönnum löngu kunnugt og hefur alla tíð staðið fyrir gæði og áreiðanleika. www.moeller.net.
Eaton sem stofnað árið 1911 af J. O. Eaton er bandarískt fyrirtæki með höfuðstöðvar í Cleveland Ohio. Úrval rafbúnaðar, allt frá rafeindaíhlutum að milli- og háspennubúnaði er meðal þess sem Eaton framleiðir. www.eaton.com
Sameining: Í aprílmánuði 2008 varð Moeller hluti af stórfyrirtækinu Eaton með kaupum Eaton á Moeller. Við sameininguna varð til risafyrirtæki með um 75 þúsund starfsmenn, viðskipti í yfir 125 löndum og með veltu upp á 15,4 milljarða dollara árið 2008. Moeller og Eaton eiga margt sameiginlegt og sameinaðir verða báðir aðilar sterkari en nokkru sinni fyrr.
Okkar sýn á samrunann er sú að framundan séu virkilega spennandi tímar. Við erum þess fullviss að þetta sé mikil lyftistöng fyrir Moeller/Eaton, Reykjafell og alla Moeller/Eaton notendur almennt. Næstu mánuði munum við sjá nýjungar hjá Moeller/Eaton sem koma úr vöruúrvali Eaton. www.reykjafell.is
Moeller vörumerkið mun breytast hægt og rólega allt til ársins 2012 en þá verður breytingin fullkláruð. Breytingin felst í því að nafnið Moeller mun verða Eaton og græni liturinn verður blár. Innihaldið mun samt áfram verða áreiðanlega og nytsamlega Moeller varan sem við allir þekkjum og treystum.
Ykkar hagur er að nú mun vöruúrval breikka verulega og lausnir verða okkur innan handar til úrlausna þeirra verkefna sem okkar bíða í framtíðinni. Kæru viðskiptavinir, þið munið þvi sjá merki Eaton birtast á Moeller umbúðum, leiðbeiningum og á heimasíðunni www.moeller.net.
Með skrifum þessum vonumst við til að sem flestum spurningum hafi verið svarað um breytinguna sem margir hverjir eru nú þegar farnir að sjá þegar þeir vinna með Moeller/Eaton rafbúnað. Á næstu vikum og mánuðum mun Reykjafell kynna breytinguna og undirbúa jarðveginn fyrir nýja og spennandi hluti sem líta munu dagsins ljós einn af öðrum.
Með skrifum þessum vonumst við til að sem flestum spurningum hafi verið svarað um breytinguna sem margir hverjir eru nú þegar farnir að sjá þegar þeir vinna með Moeller/Eaton rafbúnað. Á næstu vikum og mánuðum mun Reykjafell kynna breytinguna og undirbúa jarðveginn fyrir nýja og spennandi hluti sem líta munu dagsins ljós, einn af öðrum. |